Aðalfundur Trans-Ísland 2015
Fundur settur 15:14.
Mætt eru: Ugla, Elísa, Sara, Davíð, Örn, Sandra, Karel, Steina og Þórunn Birna.
- Fundur var settur og Ugla Stefanía kosin fundarritari og Anna Margrét Grétarsdóttir fundarstjóri. Lögmæti fundar var staðfest.
- Ugla Stefanía formaður fór með skýrslu stjórnar (verður aðgengileg inn á heimasíðu félagsins, trans.samtokin78.is).
- Endurskoðaðir reikningar voru lagðir fram og fór Elísa gjaldkeri yfir skýrsluna. Engar athugasemdir voru gerðar við ársreikninga og var samþykkt einróma.
- Engar lagabreytingar voru lagðar fram né bárust fyrir tilsettan tíma. Engar lagabreytingar gerðar á þessum.
- Kosningar fóru fram og voru eftirfarandi aðilar kosnir í stjórn: Elísa Björg sem formaður, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir sem varaformaður, Steina Dögg sem gjaldkeri, Sara Stefanía sem ritari og Davíð Alexander kosinn meðstjórnandi.
- Anna Margrét Grétarsdóttir kosin sem skoðunarkona reikninga.
- Ársgjaldi er haldið óbreytt; 2.500 kr. almennt gjald og 1.000 kr. fyrir námsmenn.
- Önnur mál –
a) Elísa undirstrikar mikilvægi þess að skipuleggja og halda utan um atriði á Hinsegin dögum. Ugla leggur til að Trans-Ísland verði með einhverskonar viðburð á Hinsegin dögum líka og þetta verði gert vel á þessu ári til að auka sýnileika félagsins út á við.
b) Fríða, Adrian og Pumpkin lögðu til að halda einhverskonar listasýningu.
c) Borin var upp tillagan að kjósa fólk í að sjá til þess að skipuleggja atriði fyrir gönguna á Hinsegin dögum. Þórunn Birna, Adrian&Fríða&Pumpkin, Sandra Rós, Anna Margrét og Davíð Alexander. Davíð býr til feisbúkk hóp fyrir skipulagninguna.
d) Örn Danival leggur til að atriði á hinsegin dögum verði mun gleðilegra frekar en pólítískt. Adrian leggur fram hugmyndina „Free as a Bird.“
e) Rætt var um húsnæði Samtakanna 78 sem munu opna eftir einn og hálfan mánuð skv. aðalfundi Samtakanna 78, 21. mars síðastliðinn.
f) Sandra Rós lýsir áhuga á að fara í að uppfæra og betrumbæta síðuna og bæta efni í samstarfi við Uglu.
Fundi slitið kl. 15:58.