Fyrr í dag bárust fréttir af því að borgarráð hefði samþykkt tillögu Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að leggja niður mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar, í nafni hagræðingar, og að starfsfólki hafi ýmist verið sagt upp eða það fært til í starfi. Fulltrúar meirihluta borgarstjórnar hafa haldið því fram að lögbundin verkefni verði færð til en svo virðist sem ráðist hafi verið í þessar breytingar án þess að skilgreina áður í hvaða farveg verkefni og skuldbindingar borgarinnar í mannréttindamálum eigi að fara. Ákvörðunin kemur því til með að hafa gríðarleg áhrif á þjónustu við jaðarsetta hópa í borginni á borð við fatlað fólk, eldri borgara, vímuefnaneytendur, innflytjendur og hinsegin fólk.
Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hefur meðal annars haldið utan um hinseginfræðslu í skólum og regnbogavottun vinnustaða borgarinnar, auk þess sem hún hefur staðið fyrir töluverðu samráði og samvinnu við mannréttindasamtök á borð við Samtökin ’78, Trans Ísland og Rauða krossinn. Auk þess hefur skrifstofan haldið utan um mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar, sem hafa verið veitt á hverju ári síðan 2008 og hafa eflt fjölmarga grasrótarhópa og einstaklinga til að lyfta grettistaki í mannréttindamálum. Reykjavíkurborg hefur staðið flestum öðrum stjórnvöldum á Íslandi framar í mannréttindamálum á síðastliðnum árum, unnið gríðarlega mikilvægt starf í þágu inngildingar og verið öflugur bandamaður grasrótarhópa og -samtaka.
Með því að leggja niður mannréttindaskrifstofuna glatast stofnanaminni og heildstæð sýn á mannréttindamál innan borgarkerfisins, auk þess sem eftirlit með þjónustu borgarinnar hvað varðar mannréttindi íbúa veikist til muna. Starfsfólki sem starfar við mannréttindamál fækkar og samskipti við grasrótarhópa og félagasamtök veikjast. Stjórn Trans Íslands lýsir yfir miklum vonbrigðum með þessa ákvörðun og töluverðum áhyggjum af því að hún verði til þess að mannréttindavernd innan borgarinnar veikist til muna. Sem höfuðborg Íslands á Reykjavík að vera í fararbroddi í jafnréttis- og mannréttindamálum. Það að leggja niður mannréttindaskrifstofu hennar í hagræðingarskyni innan við mánuði frá upphafi kjörtímabils nýrrar borgarstjórnar er ekki til marks um að nýr meirihluti sé sama sinnis.
Undirritað,
Reyn Alpha Magnúsdóttir, forseti
Kolbrá Ethel Dagnýjardóttir, varaforseti
Irma Alexandra Hopkins, ritari
Aró Berg Jónasar, gjaldkeri
Marteinn Lundi Kjartansson, meðstjórnandi
