Aðalfundur Trans Íslands 2026

By 27. janúar, 2026Fréttir

Aðalfundur Trans Íslands verður haldinn kl. 17:30 mánudaginn 23. febrúar næstkomandi í húsnæði Samtakanna ’78 að Suðurgötu 3.

Atkvæðisrétt og kjörgengi hefur skráð félagsfólk sem hefur borgað félagsgjöld ársins 2026. Þau sem ekki eru skráð í félagatalið geta skráð sig með skráningarformi.

Að sinni verður enginn posi á staðnum og því EKKI hægt að greiða félagsgjöld með korti á fundinum. Við mælum því með að greiða þau fyrir fundinn með því að leggja inn á reikning Trans Íslands með millifærslu og senda kvittun á stjorn@transisland.is:

reikn. 0133-15-006932
kt. 491107-0650

Einnig er hægt að leggja inn á félagið í gegnum Aur með notandanafninu @transisland eða númerinu 123 791 0078.

Almennt félagsgjald er 2.000 kr. eða 500 kr. fyrir nema, öryrkja, eða önnur sem hafa ekki efni á að borga almennt félagsgjald.

Dagskrá:

  1. Fundur settur.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  3. Lögmæti aðalfundar staðfest.
  4. Skýrsla stjórnar.
  5. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram.
  6. Umræða og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar og ársreikninga.
  7. Lagabreytingar.
  8. Kosning forseta.
  9. Kosning fjögurra stjórnarmeðlima.
  10. Kosning eins skoðunaraðila reikninga.
  11. Samþykkt félagsgjalds.
  12. Önnur mál.

Fólki sem hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn er bent á að gera það með framboðsformi.

Einnig verður hægt að bjóða sig fram á fundinum sjálfum.

Tillögur að lagabreytingum þurfa að berast stjórn með minnst tveggja daga fyrirvara í tölvupósti á stjorn@transisland.is. Þær tillögur sem kosið verður um verða birtar félagsfólki minnst sólarhring fyrir aðalfund. Núgildandi lög eru aðgengileg á vef félagsins.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!